Skip Navigation

STADA og Alvotech hefja sölu á Uzpruvo, fyrstu líftæknilyfjahliðstæðunni við Stelara í Evrópu

Business
22 July 2024
  • Líftæknilyfjahliðstæðan kemur á markað um leið og einkaleyfi fyrir frumlyfið eru að falla úr gildi í Evrópu
  • Félögin eru fyrst til að keppa um markað sem velti 2,4 milljörðum evra á síðasta ári, auka þar með aðgengi og lækka verð til sjúklinga
  • Þetta er önnur líftæknilyfjahliðstæðan sem STADA og Alvotech setja á markað, á eftir Hukyndra, hliðstæðu við Humira í háum styrk

Alvotech (NASDAQ: ALVO) og STADA tilkynntu í dag að samstarfsfélögin hafi sett á markað Uzpruvo, fyrstu líftæknilyfjahliðstæðuna við Stelara (ustekinumab) sem hlaut markaðsleyfi í Evrópu. Sala er hafin í helstu Evrópulöndum, þar sem verð og greiðsluþáttaka heilbrigðistrygginga hefur verið samþykkt. Salan hefst um leið og mögulegt er eftir að einkaleyfi fyrir frumlyfið féllu úr gildi. Stelara er mikilvægt lyf til meðferðar við þrálátum meltingar-, húð- og gigtarsjúkdómum. Sala Uzpruvo í fleiri löndum Evrópu hefst á næstu mánuðum, um leið og opinberir aðilar hafa samþykkt verðlagningu lyfsins.

Með því að hefja markaðssetningu um leið og auðið er, aukum við aðgengi og eflum samkeppni. Við erum ánægð að fleiri sjúklingar eigi þess nú kost að nýta sér þetta mikilvæga meðferðarúrræði.

Peter Goldschmidt

Forstjóri STADA

Við fögnum því að Uzpruvo sé komið í sölu um alla Evrópu og að vera fyrst á markað. Þetta staðfestir getu Alvotech í þróun og framleiðslu og möguleika samstarfsins við STADA, sem leggur áherslu á útbreiðslu líftæknilyfjahliðstæða.

Róbert Wessman

Stjórnarformaður og forstjóri Alvotech

Uzpruvo var fyrsta líftæknilyfjahliðstæðan við Stelara sem hlaut markaðsleyfi frá framkvæmdastjórin Evrópusambandsins, í janúar sl. Lyfið er leyft til meðferðar við sóra (psoriasis), sóraliðagigt, sóra barna (pediatric plaque psoriasis) og Chrons sjúkdómnum. Notkun til meðferðar við sáraristilbólgu hefur ekki verið leyfð þar sem einkaréttur frumlyfjaframleiðandans fyrir þeirri ábendingu er enn í gildi.

Uzpruvo er í boði í áfylltri sprautu með mjórri nál en notuð er fyrir frumlyfið, og inniheldur ekki latex til að draga úr hættu á ofnæmisviðbrögðum. Lyfið er framleitt á Íslandi.

Þetta er önnur líftæknilyfjahliðstæðan sem Alvotech og STADA setja á markað. Félögin hófu árið 2022 sölu í Evrópu á Hukyndra, líftæknilyfjahliðstæðu við Humira í háum styrk. Þá var nýlega kynnt samstarf félaganna um þróun, framleiðslu og sölu á AVT03, fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við Prolia og Xgeva, sem bæði innihalda denosumab. STADA selur nú alls sjö líftæknilyfjahliðstæður í Evrópu, að Uzpruvo meðtalinni.