Skip Navigation

Sarah Tanksley tekur sæti í stjórn Alvotech hf. og Sandra Casaca skipuð framkvæmdastjóri gæðamála

Business
19 April 2023

Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag breytingar á skipulagi gæðastjórnunar Alvotech. Sandra Casaca hefur verið skipuð framkvæmdastjóri gæðamála. Sarah Tanksley tekur sæti í stjórn Alvotech hf., rekstrarfélagi Alvotech á Íslandi.

Ég vil þakka Söru fyrir einstakt framlag hennar til félagsins. Við erum spennt að halda samstarfinu áfram, þar sem Sara mun sem stjórnarmaður geta veitt leiðsögn um gæðamál og lyfjaeftirlit. Það er jafnframt mikið gleðiefni að geta boðið Söndru velkomna í teymið. Hún er afar reynslumikill stjórnandi á sviði gæðamála, með framúrskarandi feril að baki hjá þróunar- og framleiðslufyrirtækjum í Bandaríkjunum, Evrópu, Kanada og Rómönsku Ameríku. Við höfum unnið að því að styrkja innlenda stjórnendateymið enn frekar og verður Sandra með aðsetur hér á landi.

Róbert Wessman

Stofnandi, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech

Sandra Casaca hefur 25 ára reynslu af störfum í lyfjaiðnaðinum og er með sterkan alþjóðlegan bakgrunn í gæðastjórnun fyrir framleiðslu líftæknilyfja. Sandra hefur undanfarin ár gengt lykilstöðum á sviði gæðamála fyrir stór alþjóðleg fyrirtæki í lífvísindum, þar á meðal BMS, Amgen, AbbVie og Atara. Hún er með meistaragráðu í lyfjafræði frá háskólanum í Lissabon.