- Simlandi er fyrsta líftæknilyfjahliðstæðan í háum styrk með útskiptileika við Humira
Alvotech (NASDAQ: ALVO) og samstarfsaðili þess Teva Pharmaceuticals Ltd. tilkynntu í dag að sala væri hafin í Bandaríkjunum á Simlandi (adalimumab-ryvk), fyrstu líftæknilyfjahliðstæðunni í háum styrk með útskiptanleika við Humira sem hlotið hefur markaðsleyfi frá Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna (FDA).
Við erum stolt af því að geta boðið meðferðaraðilum og sjúklingum í Bandaríkjunum aðgang að Simlandi. Líftæknilyfjahliðstæður draga úr kostnaði við heilbrigðisþjónustu og Simlandi er fyrsta sítrat lausa líftæknilyfjahliðstæðan í háum styrk með útskiptanleika við Humira sem í boði er á markaði í Bandaríkjunum. Við munum vinna þétt með tryggingafyrirtækjum og innkaupaaðilum til að tryggja aðgengi sjúklinga að Simlandi, og þeim sex líftæknilyfjahliðstæðum til viðbótar sem við ætlum að setja á markað fram til ársins 2027.
Simlandi er fyrsta líftæknilyfjahliðstæðan við Humira án sítrats og í háum styrk sem FDA hefur veitt markaðsleyfi með útskiptanleika, og fylgir því einkaréttur til að markaðssetja hliðstæðuna með útskiptanleika í styrkleikanum 40mg/0.4mL. Líftæknilyfjahliðstæður við Humira í lágum styrk og hliðstæður í háum styrk eru þegar komnar á markað í Bandaríkjunum, en um 88% af ávísunum á adalimumab eru fyrir lyfið í háum styrk, samkvæmt gögnum sem safnað er af gagnaveitunni Symphony.
Það er mikil ánægja að geta boðið sjúklingum í Bandaríkjunum upp á Simlandi. Við hlökkum til þess að halda áfram að auka framboð í Bandaríkjunum af hagstæðum hágæða líftæknilyfjahliðstæðum, þar sem þær geta dregið úr hratt vaxandi kostnaði í heilbrigðiskerfinu og fyrir sjúklinga
Fyrsti samstarfssamningur Alvotech og Teva var undirritaður í ágúst 2020. Þá var samið um sölu og markaðsetningu fimm líftæknilyfjahliðstæða sem þróaðar verða og framleiddar af Alvotech. Í ágúst á síðasta ári gengu félögin til aukins samstarfs og bættust tvær nýjar líftæknilyfjahliðstæður við samstarfið, auk nýrra útgáfa af tveimur hliðstæðum sem voru hluti af upprunalega samkomulaginu. Alvotech sér um alla þróun og framleiðslu, en Teva sér um sölu og markaðssetningu í Bandaríkjunum og nýtir þar með mikla reynslu og öflugt sölu- og markaðsnet. Simlandi er fyrsta líftæknilyfjahliðstæðan í samstarfinu sem kemur á markað. Í apríl sl. veitti FDA markaðsleyfi fyrir Selarsdi (ustekinumab-aekn) sem líftæknilyfjahliðstæðu við Stelara (ustekinumab) og verður hún önnur hliðstæðan í samstarfinu sem kemur á markað. Gert er ráð fyrir að sala á Selarsdi hefjist í lok febrúar á næsta ári.
Notkun á vörumerkjum
Humira er skráð vörumerki AbbVie Biotechnology Ltd. Stelara er skráð vörumerki Johnson & Johnson.