Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag að fyrirtækið hafi keypt þróunarstarfsemi sænska líftæknifyrirtækisins Xbrane Biopharma AB (“Xbrane”). Með kaupunum eykur Alvotech afkastagetu sína í þróun nýrra líftæknilyfjahliðstæða, styrkir stöðu sína sem leiðandi afl á þessu sviði og haslar sér völl innan sænska líftæknigeirans. Alvotech tekur yfir aðstöðu og búnað Xbrane, við Karolínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi og starfsfólk í þróunardeild fyrirtækisins. Með kaupunum eignast Alvotech jafnframt allt lyfjahugvit Xbrane tengt fyrirhugaðri hliðstæðu við Cimzia (certolizumab pegol). Alvotech mun ljúka við þróun lyfsins og stefnir að því að setja það á markað á árinu 2028. Samhliða kaupunum mun Alvotech í framhaldinu skoða mögulega skráningu í kauphöllinni í Stokkhólmi með útgáfu sænskra heimildaskírteina (SDR).
Helstu staðreyndir um kaupin
- Alvotech kaupir rannsóknaraðstöðu og búnað Xbrane auk fyrirhugaðu hliðstæðunnar XB003.
- Xbrane heldur réttindum að tveimur verkefnum og verður áfram skráð á markað.
- Starfsmönnum Xbrane verða boðin störf í rannsóknar- og þróunardeild Alvotech í Stokkhólmi
- Umsamið kaupverð er 275 milljónir sænskra króna (um 3,6 milljarðar íslenskra króna) og verða 102,2 milljónir sænskra króna greiddar í reiðufé og 172,8 milljónir sænskra króna með yfirtöku skulda, en meirihluti þeirra eða 152,8 milljónir sænskra króna verður greiddur með eigin bréfum.
- Kaupin eru bundin skilyrðum um samþykki viðkomandi yfirvalda og hluthafa Xbrane.
- Stjórn Xbrane hefur samþykkt söluna til Alvotech. Auk stjórnarmanna, hafa stórir fjárfestar í hluthafahópi Xbrane skuldbundið sig til að greiða atkvæði með sölunni á hluthafafundi.
- Stjórn Xbrane mun kalla saman hluthafafund í apríl til að afla heimildar til að ljúka sölunni.
- Reiknað er með því að kaupunum verði lokið í apríl 2025.
Alvotech er nú þegar í hópi leiðandi fyrirtækja á heimsvísu í þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæða. Velta þeirra frumlyfja sem Alvotech þróar hliðstæður við er umtalsvert meiri en hjá nokkrum keppinaut okkar. Við ætlum að halda áfram að fjölga lyfjum í þróun og þar með bæta aðgengi sjúklinga að líftæknilyfjum í hæsta gæðaflokki. Kaupin á þróunarstarfsemi Xbrane auka enn frekar afkastagetu okkar í þróun nýrra lyfja, á sama tíma og Alvotech ætlar að fjölga verulega starfsfólki við lyfjaþróun á Íslandi. Fjöldi líftæknifyrirtækja í Svíþjóð er annar mesti á eftir Bandaríkjunum. Aðgengi að reyndu starfsfólki er því gott og jafnframt opnast möguleikar á frekara samstarfi við önnur sænsk líftæknifyrirtæki. Kaupin á þróunarstarfsemi Xbrane er því mikilvægt skref sem treystir enn frekar leiðandi stöðu okkar í þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæða.
Um XB003
Frumlyf XB003, Cimzia (certolizumab pegol) er notað til meðferðar við sjálfsónæmissjúkdómum eins og psóríasis og liðagigt. Tekjur af sölu þess á síðasta ári námu nærri 300 milljörðum króna. Rannsóknir sýna að Cimzia er öruggt til notkunar fyrir barnshafandi konur og konur með barn á brjósti.
Ráðgjafar
DNB Markets og Carnegie Investment Bank eru fjárhagslegir ráðgjafar Alvotech við kaupin á Xbrane. Cirio og Westerberg veittu lögfræðilega ráðgjöf.
Notkun vörumerkja
Cimzia er skráð vörumerki UCB.