Skip Navigation

Alvotech hefur klíníska rannsókn á AVT05, fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við Simponi® og Simponi Aria®

Business
04 May 2023
  • Rannsóknin mun bera saman AVT05 og Simponi í sjúklingum með meðallagi alvarlega eða alvarlega liðagigt

Alvotech (NASDAQ: ALVO) hefur hafið klíníska rannsókn á AVT05, fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við Simponi og Simponi Aria (golimumab). Rannsóknin mun bera saman klíníska virkni, öryggi og þolanleika AVT05 og Simponi í fullorðnum sjúklingum með meðallagi alvarlega eða alvarlega liðagigt.

Ég fagna þessum nýja áfanga í klínískri þróun á líftæknilyfjahliðstæðum Alvotech. Markmið okkar er að bæta lífsgæði sjúklinga með auknu framboði af hagkvæmari líftæknilyfjum. Til þess hefur Alvotech byggt upp fullkomna aðstöðu sem gerir okkur kleift að vinna að þróun og framleiðslu margra lyfja samhliða.

Joseph McClellan

Framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar

Rannsóknin felst í slembiraðaðri, tvíblindri, fjölsetra meðferðarprófun til að bera saman klíníska virkni, öryggi og þolanleika AVT05 og Simponi í sjúklingum með meðallagi alvarlega eða alvarlega liðagigt. Meginendapunktur verður samanburður á virkni AVT05 og Simponi á 16. viku, út frá breytingu frá grunnmælingu samkvæmt stöðluðu prófi sem metur alvarleika liðagigtar með klínískum athugunum og mælingum. Í janúar kynnti Alvotech að hafin væri rannsókn á lyfjahvörfum AVT05.

Heildartekjur af sölu Simponi og Simponi Aria nema um 2,1 milljarði Bandaríkjadala á ári, samkvæmt nýjustu ársfjórðungsuppgjörum Johnson & Johnson, framleiðanda lyfjanna.

Um AVT05

AVT05 er líftæknilyfjahliðstæða við Simponi og Simponi Aria (golimumab). Golimumab er einstofna mótefni sem hamlar frumuboðefninu tumor necrosis factor alpha (TNF alpha). Aukið magn TNF alpha er talið geta verið orsakaþáttur í þrálátum bólgusjúkdómum, s.s. liðagigt, sóraliðagigt og hrygggigt. AVT05 er lyf í þróun hefur ekki verið samþykkt til notkunar á neinu markaðssvæði. Þá liggur niðurstaða eftirlitsaðila ekki fyrir um notkun lyfsins sem líftæknilyfjahliðstæðu.